Sunday, August 31, 2008

Vika í Milano

7 DAGAR....
Jæja - núna styttist óðum í flutning. Allt að verða klárt og íbúðin að verða tóm. Eina sem er ekki komið á sinn stað er hann Bono litli. Við erum því miður ekki búin að finna gott heimili fyrir hann! Sniff sniff.. En við höfum viku - svo endilega ef einhver veit um einhvern sem vill fá yndislegan kisa má hann láta okkur vita :)
Það var ekkert smá mikið stuð hérna í Blöndunni á föstudaginn! Rosa reif-kveðju-partý - með öllu tilheyrandi, bollu, glóstiks og besta DJ-inum, Danna deluxxx.
Áður en ég hætti ætla ég að láta vita að við erum orðin grafarvogsbúar þangað til við förum út. Svo þeim sem dettur í hug að kikja í Blönduna mæta bara Bono karlinum.
KS