Tuesday, April 14, 2009

Up next - Salone del Mobile

Þá erum við komin heim eftir æðislega dvöl í Svíþjóð. Það er alveg magnað hvað svona skemmtilegar stundir þurfa að líða hratt! Mér finnst eins og ég/við höfum verið að fara í gær til þeirra og svo erum við bara komin heim! En þetta var ekkert smá yndislegur tími, við borðuðum yfir okkur af góðgæti eins og humri, páskaskinku, páskaeggjum, kökum og fleira til. Höfum sko ekki fengið svona mikið af góðum mat í langan tíma :) En svona eiga páskarnir líka að vera.
Núna tekur svo alvaran við aftur - mikið að gera í skólanum hjá mér næstu vikurnar og líka alveg brjálað hjá Hafsteini, Óla og félögum að undirbúa fyrir Salone del Mobile sem byrjar í næstu viku. Verður ekkert smá skemmtilegt - Vúhúúú!

En ég vil bara þakka enn og aftur fyrir okkur elsku Anna sys og Jósi. Erum strax farin að hlakka mikið til að hitta ykkur í sumar og sjá nýja húsið.
- Set inn nokkrar myndir frá ferðinni.






Ciao,
KS