Saturday, May 2, 2009

Veðrið er búið að vera alveg yndislegt hérna síðustu daga. Erum búin að njóta þess svo að eiga frí og erum búin að fara út í garð með nesti og skólabækur og haft það alveg ótrúlega notalegt saman! Vorum svo boðin í mat til Rui, Margaritu og Jonu í gær. Voru með allskonar Portúgalska smárétti og svo steik í aðalrétt.
Næstu vikur eru alveg pakkaðar hjá mér í skólanum - er að skila verkefnum og í prófum. En það verður alveg ótrúlega gott að klára þennan kafla því svo koma mamma og pabbi til okkar í júní þegar það er aðeins farið að róast. Einnig voru Andri, Linda, Ára og Svava að panta far til okkar 19 júlí - hlökkum svo mikið til. Verðum nánast alveg komin í sumarfrí þá! :)
Set nokkrar myndir frá helginni.



Komin í matarboðið

Rui að opna champagne